Maður frá Þorlákshöfn ákærður fyrir alvarlega líkamsárás inni á Lemmy

Héraðssaksóknari hefur ákært mann frá Þorlákshöfn fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás inni á veitinga- og tónleikastaðnum Lemmy í Austurstræti. Manninum er gefið að sök að hafa aðfaranótt 9. júlí árið 2023 slegið annan mann með glerglasi í höfuðið, með þeim afleiðingum að hann hlaut fjölda yfirborðsáverka á andliti og skurð á innanverða efri vör. Brotaþoli gerir kröfu um skaða- og miskabætur að fjárhæð 1,5 milljónir króna. Málið er þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur í dag, 30. júní.
Maður frá Þorlákshöfn ákærður fyrir alvarlega líkamsárás inni á Lemmy

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd