Traust til stjórnvalda og opinberra stofnana hefur aukist hérlendis og traust til ríkisstjórnar mælist nærri helmingi hærra en að meðaltali í ríkjum OECD. Traust til ríkisstjórnar mældist 59% á Íslandi árið 2025 en aðeins 36% síðast þegar könnunin var gerð 2023. Traust til ríkisstjórna í OECD-ríkjunum mælist að meðaltali 40%.Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Traust til opinberra aðila mælist meira á Íslandi en að meðaltali OECD í öllum flokkum. Mest mælist traustið til lögreglu, 75% til samanburðar við 63% meðaltal OECD.Könnunin var gerð í þriðja sinn í fyrra frá 2021. Traust til dómstóla og réttarkerfis á Íslandi hefur aukist milli mælinga og er 64%, tíu prósentustigum hærra en að meðaltali í OECD.Traust til Alþingis mælist 52% til samanburðar við 37% meðaltal í OECD,