Synjun meirihlutans í Reykjavík á deiliskipulagi Borgarlínu um Suðurlandsbraut gæti haft áhrif á tímalínu fyrstu lotu verkefnisins, sem á að vera tilbúin árið 2031.Þetta segir Atli Björn Levy, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu hjá Betri samgöngum. Suðurlandsbrautin er mikilvægur hluti fyrstu lotunnar, sem á að liggja frá Ártúnshöfða, um Suðurlandsbraut, miðborgina, háskólasvæðið og Landspítalann, yfir Fossvogsbrú og í Hamraborg.