Íslenska ríkið og Landhelgisgæslan máttu banna lúxussnekkju að leggjast við höfn á Akureyri í vor. Þetta kom fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, þar sem ríkið var sýknað af kröfum félagsins La Datcha Marine X.Lögmaður félagsins sagði ekki ákveðið hvort dómnum yrði áfrýjað, hann ætti eftir að ráðfæra sig við umbjóðanda sinn.Skipverjar á La Datcha óskuðu eftir því að koma til hafnar á Akureyri 21. mars en fengu þá neitun á grundvelli þvingunaraðgerða gegn Rússlandi. Þá ákvörðun vildi eigandi snekkjunnar fá fellda úr gildi. SKIP UNDIR RÚSSNESKUM FÁNA MEGI EKKI KOMA TIL EES-HAFNA Skipið var þá undir fána Panama, á leið frá Istanbúl með 26 manns um borð. La Datcha sigldi undir rússneskum fána frá apríl 2021 til september 2022. Skipið lónaði í Eyjafirði um það bil viku, en var loks leyft