Tugþúsunda er enn saknað eftir jarðskjálftana í Venesúela og yfir 1.700 hafa fundist látin. Fólk sem bíður fregna af ástvinum sínum í strandborginni La Guaira segir yfirvöld hafa brugðist seint og illa við.Brátt verða liðnir sex sólarhringar frá skjálftunum stóru og enn er leitað að fólki í rústum húsa. Strandborgin La Guaira er ein af þeim sem urðu hvað verst úti í hamförunum, en þar búa um 20 þúsund manns.Fréttateymi BBC ræddi við fólk á vettvangi þar sem verið var að reyna að finna fólk í rústum 12 hæða fjölbýlishúss. DÝRMÆTUR TÍMI HAFI FARIÐ TIL SPILLIS Miguel Oscar Nunez bíður fregna af einkasyni sínum sem bjó í húsinu. Hann segir þörf á meiri stuðningi frá yfirvöldum tafarlaust og óttast að ef jarðskjálftinn hafi ekki drepið son hans þá verði það vanræksla yfirvalda sem geri það.K