Fögnuðu nýjum frjálsíþróttavelli í Suðursveit

Nýr frjálsíþróttavöllur var vígður við Hrollaugsstaði í Suðursveit um liðna helgi við mikinn fögnuð heimafólks. Sjálfboðaliðar í Ungmennafélaginu Vísi hafa unnið að vellinum í eitt ár segja opnun hans marka tímamót í íþróttasögu Suðursveitar.Tómas Nói Hauksson sendi fréttastofu þessar myndir af frjálsíþróttamótinu, sem hófst á Alþjóðlega Ólympíudaginn.Nýr Vísisvöllur í Suðursveit var vígður um liðna helgi. Ungmennafélagið hefur unnið að uppbyggingu vallarins í heilt ár.Á mótinu var slegið Íslandsmet í 60 metra hlaupi kvenna utanhúss. Jafnframt náðist besti tími sem skráður hefur verið í 60 metra grindahlaupi karla utanhúss og í fyrsta sinn var keppt utanhúss í 60 metra hjólastólaspretti kvenna.
Fögnuðu nýjum frjálsíþróttavelli í Suðursveit

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd