Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara er til skoðunar hjá Persónuvernd. Nöfn fimm manna sem sættu sakamálarannsókn og málsnúmer birtust í kynningarmyndbandi sem ísraelska fyrirtækið Cellebrite gerði um embættið. Héraðssaksóknari tilkynnti málið sjálfur til Persónuverndar.Þetta kemur fram í Morgunblaðinu. Þar er rætt við Helgu Þórisdóttur, forstjóra Persónuverndar. Hún segir að það verði að vera hægt að treysta á að viðkvæmar upplýsingar berist ekki þangað sem þeir eigi ekki að fara. Viðurlög við öryggisbresti geti varðað tveggja ára fangelsi og sektum.Ólafur Þór Haukssok héraðssaksóknari sagði í viðtali við fréttastofu í síðustu viku að verklag yrði endurskoðað. Skömmu eftir að málið kom upp fjallaði breski miðillinn The Guardian um notkun rússneskra yfirvalda á hugbúnaði frá Cellbrite til a