Um miðjan júní var sagt frá því í fréttatilkynningu að Bláa lónið og ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Adventures ætluðu sér að sameinast. Ef af þessum samruna verður verður til risastórt fyrirtæki á ferðaþjónustumarkaði. Samanlagður starfsmannafjöldi fyrirtækjanna tveggja er rúmlega 1100.Bláa lónið er eitt þekktasta vörumerki Íslands í ferðaþjónustu og Arctic Adventures hefur um árabil verið eitt stærsta fyrirtæki landsins á sínu sviði. Arctic selur rútuferðir sem fara Gullna hringinn með ferðamenn, býður upp á snjósleða- og köfunarferðir, rekur hótel, Kerið í Grímsnesi og fjölmargt fleira. Í fréttatilkynningu um viðskiptin kom fram að samanlagðar tekjur þessara tveggja fyrirtækja væru 34,3 milljarðar króna.Eitt af því sem vekur athygli við þessa fyrirhuguðu sameiningu Bláa lónsins og Arctic