Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans

Hæstiréttur Bandaríkjanna neitaði með fimm atkvæðum gegn fjórum að leyfa Donald Trump að reka Lisu Cook úr bankaráði bandaríska seðlabankans. Hæstiréttur kvað upp dóm sinn í gær. Í meirihlutaáliti segir að Trump hafi ekki gefið Cook færi á lögbundinni málsmeðferð. Hún hafi því ekki fengið almennilegt tækifæri til að verjast ásökunum forsetans.Í ágúst vísaði Trump í meint fjármálamisferli Cook og sagðist ætla að reka hana. Hann sagði að þar sem Cook hefði falsað gögn til að fá hagstæðari vexti á fasteignaláni væri henni ekki sætt lengur í stjórn bankans. Ásakanirnar höfðu ekki verið sannaðar fyrir dómi.Alríkisdómstóll komst að sömu niðurstöðu og hæstiréttur í september en Trump áfrýjaði dómnum til hæstaréttar.Frá stofnun bandaríska seðlabankans 1913 hefur enginn forseti gert tilraun til að
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd