Kínverski milljarðamæringurinn Guo Wengui var í gær dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum. Í júlí 2024 var hann sakfelldur fyrir fjársvik, fjárkúgun og peningaþvætti. Meðal þess sem hann var dæmdur fyrir var að svíkja yfir milljarð Bandaríkjadala út úr þúsundum fylgjenda sinna.Frá árinu 2018 nýtti Guo stöðu sína og orðstír til að sannfæra þúsundir um að fjárfesta í verkefnum sem áttu að skila mikilli ávöxtun. Féð nýtti hann fyrst og fremst til að fjármagna dýran lífsstíl sinn.Guo var handtekinn í lúxusíbúð sinni í New York af bandarísku alríkislögreglunni í mars 2023.Helsta uppspretta auðæfa Guos voru fasteignaviðskipti í Kína. Hann flúði land árið 2015 eftir ásakanir um auðgunarbrot og settist að í Bandaríkjunum.Sean S. Buckley saksóknari segir í samtali við BBC að Guo hafi misnotað tr