NFerjan Særún sigldi aukaferð til Flateyjar á Breiðafirði í kvöld til að flytja vatn til eyjarinnar. Breiðafjarðarferjan Baldur hefur sinnt vatnsflutningum út í Flatey á siglingum sínum en hann var færður til í byrjun mánaðar til að sinna auknu álagi við flutninga milli lands og Vestmannaeyja. Íbúar á Norðvesturlandi hafa gagnrýnt tilfærslu Baldurs en útlit er fyrir að hann snúi ekki aftur til Breiðafjarðar fyrr en seint í júlí.„Við erum að fara núna með 19 tonn af vatni til að rétta af vatnsbúskapinn, það gengur á hann rólega. Við förum með sex tonn alla daga en svo förum við með tólf tonn föstudaga og sunnudaga því þá förum við tvær ferðir,“ segir Siggeir Pétursson, skipstjóri á Særúnu, í samtali við fréttastofu þegar hann var að ljúka við að dæla vatninu af skipinu rétt upp úr miðnætti.