Mohammed Al-Amour efnahagsráðherra sótti ráðherrafund EFTA-ríkjanna hér á landi til að skrifa undir uppfærslu á landbúnaðarhluta fríverslunarsamnings Palestínu og EFTA. Hann sagðist vonast til að samningurinn gæti verið lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu. En hann horfir aðallega til friðarviðræðnanna sem nú eiga sér stað milli Írans og Bandaríkjanna og vonast til að samningar um vopnahlé nái til allra Miðausturlanda, þar á meðal Gaza.„En því miður eru núverandi stjórnvöld í Ísrael og landtökufólkið, sem nýtur stuðnings yfirvalda, uppsprettan að ofbeldinu og þessum óstöðugleika í heimshlutanum,“ segir Al-Amour.Hann vonast þó til að með aukinni viðurkenningu á sjálfstæði Palestínu verði friðvænlegra í Miðausturlöndum en þar gegni Bandaríkin lykilhlutverki.„Bandaríkin geta lagt þá skyld