Fjölskylda árásarmannsins var viðstödd árásina

Barnsmóðir og barn manns sem skaut sex til bana í þjónustumiðstöð í bænum Stade í norðurhluta Þýskalands í dag voru á staðnum þegar árásin átti sér stað. Fórnarlömbin voru starfsmenn barnaverndar. Sex manns voru skotnir til bana, allt fullorðnir. Árásin átti sér stað í þjónustumiðstöð, sem er félagslegt úrræði fyrir ungar mæður og börn.Lögregla segir að árásin hafi ekki beinst sérstaklega að konum, né sé grunur um að stjórnmálalegar eða trúarlegar ástæður hafi búið að baki árásinni.Í upphaflegri útgáfu fréttarinnar var því haldið fram að fórnarlömb árásarinnar hefðu tengst árásarmanninum fjölskylduböndum. Það hefur nú verið leiðrétt. Frá vettvangi árásarinnar í Stade í Neðra-Saxlandi.EPA / Fabian Hoefig
Fjölskylda árásarmannsins var viðstödd árásina

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd