Árásarmaður sem skaut sex manns til bana í þjónustumiðstöð í þýska bænum Stade í dag var þangað kominn til að ræða um forsjárdeilu.Maðurinn átti í deilu við barnsmóður sína um forsjá þriggja mánaða gamallar dóttur þeirra. Mæðgurnar voru á staðnum þegar árásin var gerð í félagslegu úrræði fyrir ungar mæður og börn. Þau sem létust voru öll starfsmenn barnaverndar.Árásarmaðurinn reyndi að flýja af vettvangi í bíl sem kona á sjötugsaldri ók. Hún er talin vera náin fjölskyldu hans. Maðurinn var þó handtekinn eftir stuttan eltingarleik við lögreglu. ÁÐUR ÞEKKTUR HJÁ LÖGREGLU Samkvæmt AFP-fréttastofunni er haft eftir Kathrin Schuol, lögreglustjóra í Lüneburg, sem sér um rannsóknina, að sá grunaði hafi áður verið þekktur hjá lögreglu, meðal annars fyrir að hafa haft í hótunum. Ekki var hann þó