Íbúar á Sléttunni í Fossvogi, einu Hrafnistuheimilanna, eru duglegir að hreyfa sig og gera alls konar æfingar, hvort sem það er í sal eða tækjasal. Þar stundar Guðmundur Einarsson líkamsrækt nokkrum sinnum í viku en hann er fæddur 25. desember 1924 og því 101 árs.„Ég fer hérna á morgnana, ég fer í tækin og svo út að ganga þegar gott er veður. Þetta heldur mér í góðu formi en ég finn fyrir því að ég er orðinn eldri en ég reyni að gera eins og ég get að hreyfa mig því ég held að það sé mikið atriði að hreyfa sig,” segir Guðmundur.Guðmundur Einarsson, 101 árs Reykvíkingur, lætur ekki deigan síga þegar líkamsrækt er annars vegar. Hann mætir fjórum sinnum í viku í ræktina og gerir þar fjölbreyttar æfingar.Guðmundur segist vera alsæll á Sléttunni. Hann segir að þar líði íbúum mjög vel og þjónust