Kenna stafsetningarvillu um samskiptaleysi við Landhelgisgæsluna

Paul Watson samtökin segjast hafa strax orðið við beiðni Landhelgisgæslunnar um að senda tilkynningar um staðsetningu Bandero á klukkutíma fresti með tölvupósti. Síðar hafi þó komið í ljós að tilkynningarnar hefðu ekki borist vegna stafsetningarvillu.Samtökin segja að tæknileg bilun hafi komið upp í sjálfvirku staðsetningarkerfi Bandero, skips samtakanna. Gæslan hefði sett sig í samband við það eftir að Bandero sigldi inn í íslenska efnahagslögsögu og beðið um að fá staðsetningu skipsins senda reglulega.Í tilkynningu segir að við nánari athugun hafi komið í ljós að einn rangur stafur hefði verið sleginn inn í netfang Landhelgisgæslunnar þegar tilkynningar voru sendar. Hafa samtökin nú endursent allar fyrri tilkynningar með tímastimplum og fengið þær staðfestar af Landhelgisgæslunni.Samtöki
Kenna stafsetningarvillu um samskiptaleysi við Landhelgisgæsluna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd