Gólfhiti í nýjum húsum virðist skapa kjöraðstæður fyrir silfurskottur til að fjölga sér, segir meindýraeyðir.„Fólk er alltaf jafnsvekkt þegar það hringir í mig og segir: „Ég er í nýju húsi og ég sé silfurskottu, ég hélt að þetta væri ekki í nýjum húsum, ég hélt þetta væri bara í gömlum húsum.“ En það er rangt, það er mikið um útköll í ný hús,“ segir Steinar Smári Guðbergsson, meindýraeyðir.Fleiri útköll vegna silfurskotta eru í ný hús en gömul segir meindýraeyðir. Gólfhiti skapar kjöraðstæður fyrir þær til að fjölga sér.Steinar segir silfurskottur oft berast inn í ný hús með pappakössum þegar verið er að flytja byggingarefni á staðinn. Einnig geti þær komið upp úr lögnum sem standa opnar meðan húsið er á byggingarstigi.Fáið þið jafnmörg útköll vegna nýrra húsa og gamalla?„Já, mér finnst þa