Hilmar R. Sölvason, sem verður 90 ára í desember næstkomandi hefur alltaf verið mikill ævintýramaður og það sannaði sig heldur betur þegar hann fór í Zip-Line í Hveragerði föstudaginn 26. júní. Zipline er svifbraut þar sem þú ert festur í öryggisbelti og rennir þér eftir stálvír yfir gil og landslag. 90 ÁRA 26. DESEMBER „Pabbi kallaði þetta „fyrsta í afmæli“ en hann verður 90 ára 26. desember næstkomandi. Með hluta af börnum sínum og barnabörnum hélt hann í Hveragerði á föstudaginn þar sem hann renndi sér af stað brosandi og sýndi enn á ný að ævintýraþráin er síður en svo horfin.Þegar niður var komið beið fjölskyldan með kampavínsglös og skálaði fyrir afmælisbarninu við mikinn fögnuð. Að því loknu lá leiðin í sumarbústað við fallega Álftavatn þar sem notið var léttra veitinga, góðra sam