Kannabisræktunin í Reykholti hluti af stærri rannsókn

Lögreglu grunar að þeir sem voru að baki kannabisræktun í Reykholti hafi staðið að tveimur öðrum slíkum ræktunum sem voru stöðvaðar á suðvesturhorninu nýlega. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru mennirnir af erlendum uppruna og eru taldir tengjast skipulagðri brotastarfsemi.Lögreglan á Suðurlandi upprætti umfangsmikla kannabisræktun í Reykholti í Bláskógabyggð í gær. Hún lagði hald á tæplega 200 kannabisplöntur, búnað til ræktunar og önnur meint fíkniefni. Samkvæmt heimildum fréttastofu gæti virði ræktunarinnar verið tugir milljóna.Lögreglan hefur nýlega upprætt tvær aðrar kannabisræktanir á suðvesturhorninu sem voru af svipaðri stærð. Þær eru taldar hafa verið starfræktar í nokkurn tíma. Plönturnar voru nokkuð stálpaðar sem gefur til kynna talsverða uppskeru.
Kannabisræktunin í Reykholti hluti af stærri rannsókn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd