Erfitt að ímynda sér eyðilegginguna í Venesúela

Helen Hafgnýr Cova, rithöfundur og útgefandi, kom hingað til lands frá Venesúela árið 2016. Hún segir að erfitt hafi verið að ná í ættingja og vini þar eftir að jarðskjálftar gengu yfir landið í síðustu viku.„Það var daginn sem þetta gerist eða kvöldið sem þetta gerist. Það bara datt allt út, allt rafmagnið og símalínur og allt það. Þá vorum við öll að reyna að ná í fjölskyldu og vini sem var hræðilegt,“ segir hún.Rafmagn sé þó komið aftur á í meirihluta landsins og hún hafi náð í allt sitt fólk.„Sem betur fer eru allir bara í heilu lagi, það er bara fínt,“ segir Helen. Þrátt fyrir það hafi mörg af hennar skyldmennum orðið fyrir efnislegu tapi þar sem hús hafi skemmst.„En þetta er því miður ekki svoleiðis hjá öllum og það er bara fullt af fólki sem er látið eða ennþá týnt,“ segir hún. Stað
Erfitt að ímynda sér eyðilegginguna í Venesúela

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd