Út er komin ný smásaga Viðskiptaráðs um hrakfarir ríkisstjórnarinnar á liðnum þingvetri. Svarthöfða virðist talsmaður útgáfunnar einkar vel fallinn til að fjalla um handarbakavinnubrögð meirihlutans. Þegar grannt er skoðað sér Svarthöfði að þar er á ferðinni fyrrverandi blaðamaður málgangs Sjálfstæðisflokksins sem bætti svo við sig afar gagnlegri reynslu sem starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Og nú kvað talsmaðurinn vera lögfræðingur útibús Sjálfstæðisflokksins, Viðskiptaráðs. Svarthöfða virðist eins og vandaðra verði það ekki.