Fórnarlömb og árásarmaður í Stade tengjast fjölskylduböndum

Lögregla í Þýskalandi segir að fórnarlömb og árásarmaður í skotárás í bænum Stade í norðurhluta landsins í dag hafi tengst fjölskylduböndum.Sex manns voru skotnir til bana, allt fullorðnir. Árásin átti sér stað í þjónustumiðstöð, sem er félagslegt úrræði fyrir ungar mæður og börn.Lögregla segir að árásin hafi ekki beinst sérstaklega að konum, né sé grunur um að stjórnmálalegar eða trúarlegar ástæður hafi búið að baki árásinni. Karl og kona voru handtekin á flótta skömmu eftir árásina. Talið er að maðurinn hafi framið ódæðisverkin en konan verið með í ráðum.Frá vettvangi árásarinnar í Stade í Neðra-Saxlandi.EPA / Fabian Hoefig
Fórnarlömb og árásarmaður í Stade tengjast fjölskylduböndum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd