Hitamet falla ítrekað í Evrópu

Að minnsta kosti 1.300 dauðsföll er hægt að rekja til hitabylgjunnar í Evrópu síðustu daga. Þetta fullyrðir Alþjóðaheilbrigðisstofnunin. Aftur er spáð um og yfir 40 stiga hita á næstu dögum á Spáni og í Portúgal.Í hitabylgju geta myndast kjöraðstæður fyirr þrumuveður og það hefur sannarlega sýnt sig síðustu daga.Kæfandi hiti gerði fyrst vart við sig um vestanverða Evrópu en bylgjan hefur fært sig austur. Viðvaranir vegna hita eru meðal annars í gildi í Búlgaríu, Serbíu, Svartfjallalandi og Króatíu.Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir hægt að rekja að minnsta kosti þrettán hundruð dauðsföll til hitabylgjunnar sem gengur yfir Evrópu. Hitamet hafa fallið mjög víða í álfunni síðustu daga.„Þessi hiti er nær óbærilegur, sérstaklega fyrir eldra fólk og ung börn. Þau eiga mjög erfitt uppdráttar núna,
Hitamet falla ítrekað í Evrópu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd