Lönduðu tveimur langreyðum

Hvalveiðiskipið Hvalur 9 landaði tveimur langreyðum í hvalstöðinni í Hvalfirði laust fyrir klukkan 18 í dag.Samkvæmt mbl.is hafa níu dýr verið veidd á þessari vertíð.Hvalveiðiskipin Hvalur 8 og Hvalur 9 héldu á veiðar 19. júní en ekkert varð af veiðunum árin 2024 og 2025.Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, sigldi inn í íslenska lögsögu um helgina. Samtökin hafa lýst því yfir að þau ætli að stöðva hvalveiðiskipin við veiðarnar.Varðskip Landhelgisgæslunnar fylgir Bandero eftir. Um borð eru fimm sérsveitarmenn og fjórir séraðgerðarmenn Landhelgisgæslu auk áhafnar.
Lönduðu tveimur langreyðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd