Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum

Dómsmálaráðherra hefur skipað Margréti Kristínu Pálsdóttur í embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum. Hún tekur við embættinu á miðvikudag. Margrét er ein þeirra sem sóttu um starf lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.Hún hefur gegnt mörgum stjórnunarstörfum innan lögreglunnar frá 2020, meðal annars sem settur aðstoðarríkislögreglustjóri, og hefur verið settur lögreglustjóri á Suðurnesjum frá maí 2025.Sex sóttu um embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum og einn dró umsókn sína til baka.Aðsend
Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd