Ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál

Ríkissaksóknari telur ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára, eins og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður hvatti til í morgun.Landsréttur hnekkti í síðustu viku dómi yfir skjólstæðingi Vilhjálms vegna aksturs undir áhrifum lyfseðilsskyldra lyfja. Vilhjálmur telur að öll mál frá gildistöku umferðarlaga í ársbyrjun 2020 þurfi að endurskoða í ljósi dómsins.Innviðaráðuneytið vinnur að reglugerð til að skýra vanhæfnismörk vegna aksturs með töku lyfseðilsskyldra lyfja.Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir í svari við fyrirspurn fréttastofu að ekki sé tilefni til þess. Slíkum málum sé almennt lokið með sektargerð sem sakborningur fallist á.Allar sektargerðir lögreglustjóra eru yfirfarnar af ríkissaksóknara sem getur ógilt sektir ef þær samræmast ekki lagareg
Ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd