Skotárásin í Stade talin vera „fjölskylduharmleikur“

Lögregla í Þýskalandi segir að skotárás í bænum Stade í norðurhluta landsins í dag hafi líklegast verið „fjölskylduharmleikur“.Sex manns voru skotnir til bana, allt fullorðnir. Árásin átti sér stað í þjónustumiðstöð, sem er félagslegt úrræði fyrir ungar mæður og börn.Lögregla segir að árásin hafi ekki beinst sérstaklega að konum, né sé grunur um að stjórnmálalegar eða trúarlegar ástæður hafi búið að baki árásinni. Þvert á móti sé hún fjölskylduharmleikur.Karl og kona voru handtekin á flótta skömmu eftir árásina. Talið er að maðurinn hafi framið ódæðisverkin en konan verið með í ráðum.Frá vettvangi árásarinnar í Stade í Neðra-Saxlandi.EPA / Fabian Hoefig
Skotárásin í Stade talin vera „fjölskylduharmleikur“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd