Frekari viðhaldsvinnu á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum hefur verið frestað fram til 17. ágúst. Mikil rigning hefur valdið töfum á viðhaldsvinnunni sem átti að ljúka 16. maí. Nú hefur verið ákveðið að fresta frekari viðgerðum þar til mesta sumarumferðin er yfirstaðin.Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að burðarþol brúarinnar, sem var byggð 1947, hafi minnkað í áranna rás og afar mikilvægt að stöðva ryðmyndun í köplum sem fyrst.Unnið hefur verið að viðgerðum á brúnni alla daga frá klukkan 8 á morgnana til klukkan 19 á kvöldin frá 26. maí. Opið hefur verið þess á milli og líka fjórum sinnum yfir daginn, ýmist í hálftíma eða klukkutíma í senn: 09:45–10:15, 12:00–13:00, 14:45–15:15, 16:45–17:15 Það skipulag tekur gildi að nýju 17. ágúst.