Lögðu hald á töluvert af meintu kannabisi í Reykholti

Lögreglan á Suðurlandi lagði hald á töluvert af „meintum kannabisplöntum, ræktunarbúnaði og meintum fíkniefnum“ í Reykholti í Bláskógabyggð í gær. Einn aðili var handtekinn og færður til skýrslutöku. Málið er til rannsóknar hjá embættinu.Greint er frá þessu í tilkynningu. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu stóðu aðgerðir í Reykholti í gær yfir í töluverðan tíma.RÚV / Ragnar VisageHelena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi ríkislögreglustjóra, segir sérsveit ekki hafa komið að aðgerðinni. Þá segir Elín Agnes Eide Kristínardóttir yfirlögregluþjónn á rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu deildina ekki hafa komið að málinu.
Lögðu hald á töluvert af meintu kannabisi í Reykholti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd