Ming Ting Mancel segir Catherine dóttur sína hafa beðið föður sinn um að stinga sig aftur eftir að dauði hennar dróst á landinn. Mancel er ákærð fyrir að bana þrítugri dóttur sinni í samverknaði við eiginmann sinn.Catherine og faðir hennar fundust látin á hótelherbergi á Edition-hótelinu í Reykjavík í fyrra. Mancel er ákærð fyrir manndráp og brot í nánu sambandi. Hún gaf skýrslu í Héraðsdómi Reykjavíkur þegar aðalmeðferð hófst um miðjan mánuð og aftur í dag.Mancel segir að Catherine hafi ekki viljað ræða um sjálfsvíg og ekkert viljað um það vita. Áður hefur hún sagt að fjölskyldan hafi ákveðið að koma til Íslands til að deyja saman því eiginmaður hennar, Emeric Mancel, hefði verið með banvænan sjúkdóm. ÁTTU ENGA KVEÐJUSTUND Mancel segir þau hjónin hafa rætt óljóst saman um sjálfsvíg. Þe