Á Hólum í Hjaltadal var í dag formlega skrifað undir samning um háskólasamstæðu sem gerir Háskóla Íslands að samstæðuháskóla og Hólaskóli verður Háskóli Íslands á Hólum, sem aðildarskóli að samstæðunni.Rektorar beggja skóla, Silja Bára Ómarsdóttir og Hólmfríður Sveinsdóttir, undirrituðu samkomulagið ásamt Loga Einarssyni, háskólaráðherra.Fyrr í mánuðinum samþykkti Alþingi frumvarp þess efnis að Háskóli Íslands og Hólaskóli – Háskólinn á Hólum megi ganga í háskólasamstæðu undir merkjum Háskóla Íslands. Undirbúningur vegna þessa hefur staðið yfir síðustu misseri og tekur samstæðan formlega til starfa 1. júlí.Samstæður sem þessar þekkjst víða erlendis en þetta er fyrsta íslenska háskólasamstæðan.