Lögreglan á Suðurlandi lagði hald á tæplega 200 kannabisplöntur, búnað til ræktunar og önnur meint fíkniefni í Reykholti í Bláskógabyggð í gær. Rúnar Steingrímsson lögreglufulltrúi staðfestir þetta. Hann segir ræktunina með þeim umfangsmestu á Suðurlandi síðustu ár. Einn var handtekinn í tengslum við málið.Lögreglufulltrúinn segir fréttastofu að tilkynning hafi borist um einkennilegar mannaferðir við hús inni í byggð í Reykholti í fyrradag. Lögregla hafi athugað málið og fundið sterka kannabislykt við húsið. Það hafði ekki verið til rannsóknar fyrir.Í framhaldi af því var farið í aðgerðir og fengin heimild til að fara inn í húsið. Lögregla sat um húsið frá degi tilkynningar og beið eftir að einstaklingur kæmi þangað.„Tilkynningin kemur þarna á deginum á undan, þannig séð, og það er farið a