Ráðherra eigi að gæta betur hagsmuna eigin kjördæmis

Enn er óvíst hvenær ferjan Baldur snýr aftur til Breiðafjarðar. Ferjan var tekin úr siglingu milli Stykkishólms og Brjánslækjar í byrjun mánaðar til að sinna auknu álagi við farþega- og ökutækjaflutninga til Vestmannaeyja. Baldur átti að snúa aftur til Breiðafjarðar 18. júní en það stóðst ekki. Sveitarfélög við Breiðafjörð gagnrýndu ákvörðunina harðlega.Baldur gegnir hlutverki varaskips fyrir Herjólf þegar Herjólfur er óstarfhæfur eða í slipp. Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, segir að það sé ekki staðan í þessu tilfelli.„Í því tilviki sem nú er uppi þá er Herjólfur í siglingum en Baldur tekinn til viðbótar til að mæta auknu álagi farþega- og vöruflutninga milli lands og Eyja. Það er eitthvað sem við sættum okkur ekki við, að Baldur sé tekinn úr siglingum á
Ráðherra eigi að gæta betur hagsmuna eigin kjördæmis

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd