Fósturfaðir grunaður um ítrekuð kynferðisbrot gegn barni áfram í haldi

Fertugur karlmaður, sem grunaður er um að hafa brotið ítrekað kynferðislega gegn barni á sem var í fóstri á heimili hans, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 22. júlí á grundvelli almannahagsmuna. Þetta staðfestir Alda Hrönn Jóhannsdóttir yfirlögfræðingur hjá lögreglunni á Suðurnesjum.Maðurinn var handtekinn um miðjan maí og húsleit gerð á heimili hans eftir að barnaverndaryfirvöld vöktu athygli lögreglu á meintum brotum mannsins. Hann hefur verið í haldi lögreglu síðan. Maðurinn býr á Suðurnesjum og er með nokkur börn í fóstri.Sem stendur beinist rannsókn lögreglu einungis að broti gegn einu barni. Barnið er á grunnskólaaldri.Alda Hrönn segir rannsókn langt komna. Gæsluvarðhaldið sé byggt á sterkum rökstuddum grun um brot og gert er ráð fyrir að maðurinn sæti gæsluvarðhaldi þar ti
Fósturfaðir grunaður um ítrekuð kynferðisbrot gegn barni áfram í haldi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd