Þau stóru tíðindi bárust í dag að Valur hefði ákveðið að láta Hermann Hreiðarsson taka pokann sinn eftir örfáa mánuði í starfi. Valur er í fimmta sæti Bestu deildarinnar en liðið vann Þór í gær, í síðasta leik Hermanns með stjórnartaumana. Þetta er vægast sagt áhugaverð ákvörðun, sérstaklega í ljósi þess hve stutt Hermann hefur verið með liðið ,en kannski er það áhugaverðasta í öllu saman sú vegferð sem Valur er á bæði í karla- og kvennaboltanum. Valur er nefnilega félag sem var að berjast um alla titla fyrir nokkrum árum síðan. Núna eru bæði karla- og kvennalið félagsins langt frá því.