Fornleifauppgröftur fer fram á lóð Laugavegar 1 sem stendur, einu af elstu húsum Reykjavíkur. Húsið var nýlega rifið en verður byggt upp að nýju í upprunalegri mynd.Sólveig Guðmundsdóttir Beck jarðfornleifafræðingur rannsakar þar það sem eftir er af mannvistarleifum frá 19. öld sem tengjast þeim húsum sem stóðu á lóðinni. BYGGT ÁRIÐ 1848 Framhúsið byggði Gustav Ahrenz, trésmiður og malari, árið 1848. Jón Pétursson, dómstjóri, keypti það af honum ári síðar og bjó þar ásamt fjölskyldu sinni til 1903. Verslunin Vísir var lengst af í húsinu – hún var opnuð 1915 og var rekin þar til ársins 2015.„Allt sem við erum að finna er í rauninni 19. öld, mið og seinni hluti 19. aldar þannig að það er ekkert eldra sem er að koma í ljós hérna. Og það er í rauninni ekkert skrýtið af því að það voru í rau