Fæðingardeild Heilbrigðisstofnunar Austurlands í Neskaupstað verður lokuð í rúmar fimm vikur í sumar. Lokunin hefur áhrif á um 20 konur sem þurfa að ferðast landshorna á milli til að eiga börn á tímabilinu.Skurðstofan á sjúkrahúsinu í Neskaupstað verður lokuð frá 8. júlí til 14. ágúst vegna framkvæmda við endurbætur. Á meðan verða ekki gerðar skurðaðgerðir og ekki verður hægt að sinna fæðingarþjónustu. Heilbrigðsstofnun Austurlands vísar skjólstæðingum eftir atvikum til Sjúkrahússins á Akureyri eða Landspítala. Þórarna Gró Friðjónsdóttir starfandi forstjóri HSA segir aldrei æskilegt að skerða þjónustu.„Við gerum okkur fulla grein fyrir því að þetta veldur skjólstæðingum óþægindum. En á sama tíma eru þessar framkvæmdir nauðsynlegar og bara kominn tími á að það sé farið í þessar endurbætur t