Frönskum manni á sextugsaldri hefur verið birt ákæra í Lögbirtingablaðinu. Ákærandi er Lögreglustjórinn á Suðurlandi, en manninum er gefið að sök brot gegn lögum um farþegaflutninga og farmflutninga vegna atviks sem átti sér stað mánudaginn 7. apríl árið 2025. Er hann þá sagður hafa rekið bíl um Austurveg við Eyraveg á Selfossi með farþega um borð, í atvinnuskyni í ferðaþjónustu. Maðurinn var hvorki með meirapróf, sem er áskilið við flutninga af þessu tagi, né gilt rekstrar- og ferðaþjónustuleyfi, en lögregla stöðvaði akstur hans.