Áfengislagerum netverslana með áfengi fjölgar og starfsemin festir sig í sessi þrátt fyrir að vera á gráu svæði lagalega. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir það afstöðu ráðuneytis síns að netverslun með áfengi sé ólögleg.ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, skoðar fyrirkomulag áfengissölu hérlendis eftir kvörtun frá Samtökum verslunar og þjónustu um að einkaleyfi ÁTVR samræmist ekki EES-samningnum. Í svari til ESA segir fjármálaráðuneytið skýrt að ÁTVR hafi einkaleyfi til smásölu áfengis innanlands. Einstaklingum sé heimilt að flytja inn áfengi til einkanota en öll smásala þriðja aðila eða milliganga sé bönnuð með lögum. „EKKI Í SAMRÆMI VIÐ LÖG“ Inntur eftir því hvort þetta þýði ekki beinlínis að netverslun með áfengi sé ólögleg hér á landi segir Daði Már það vera afstöðu fjármálaráðu