Innviðaráðuneytið vinnur að lokaútfærslu reglugerðar um vanhæfnismörk vegna aksturs með töku lyfseðilsskyldra lyfja. Drög að reglugerðinni voru sett í samráðsgátt í vor og rann umsagnarfrestur út 6. júní.Í drögunum eru vanhæfismörk miðuð við því sem samsvarar 0,5‰ vínanda og þar er tiltekið hámarksgildi ýmissa lyfja í blóði ökumanns. Reglugerðin á aðeins að taka til lyfja sem tekin eru í samræmi við tilvísun læknis. VILL LÁTA ENDURSKOÐA MÁL Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður skoraði í morgun á ríkissaksóknara að endurskoða öll mál síðustu sex og hálft ár (frá gildistöku umferðarlaga) þar sem ökumaður taldist óhæfur til að aksturs vegna neyslu lyfja.Landsréttur sýknaði mann í síðustu viku af ákæru um að hafa brotið umferðarlög vegna aksturs undir áhrifum lyfja.Ríkissaksóknari