Um 65.000 manns hafa skráð sig í vildarkerfið Takk frá því það var kynnt fyrir aðeins fimm mánuðum síðan. Virkasti notandinn hefur nú þegar safnað yfir 100.000 Takk krónum með því að nýta sér sérkjör og tilboð í kerfinu, eins og segir í fréttatilkynningu frá Högum.Takk er vildarkerfi Haga og veitir viðskiptavinum aðgang að sérkjörum hjá Bónus, Hagkaup, Eldum rétt og völdum þjónustuþáttum hjá Olís. Sérkjörin byggja á samstarfi við birgja sem taka þátt í Takk og bjóða vildarvinum aukinn ávinning af völdum vörum á hverjum tíma.