Það eru ekki bara farsímar sem geta lent í vandræðum með að ná í Neyðarlínuna eftir að slökkt var á 2G og 3G sendum landsins. Frá 2018 hefur verið skylda að allir bílar séu búnir eCall-kerfi sem hringir sjálfvirkt neyðarsímtal við árekstur. Þá eru einnig sumir bílar búnir sérstökum SOS-neyðarhnapp sem hægt er að nota til að hringja handvirkt í Neyðarlínuna.Það var ekki fyrr en í upphafi árs 2025 að þessir bílar fóru að styðja 4G tækni. Bílar nýskráðir á Íslandi 2018-2024 geta því ekki hringt í Neyðarlínuna eftir að slökkt var á sendunum, um 120.000 ökutæki. FLEIRI EN BARA ÖKUTÆKI OG FARSÍMAR SEM NOTA 2G OG 3G Það eru fleiri sem styðjast við 2G og 3G kerfið. Það eru öryggiskerfi, öryggishlið, sum lækningartæki, neyðarkerfi lyfta og fleira. Hægt var að bregðast við útfösun 2G og 3G víða e