Bandero ekki komist í nálægð við Hval 8 og Hval 9

Varðskip Landhelgisgæslunnar fylgir Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna, innan íslenskrar lögsögu en ekki er vitað að fullu hvert leiðin liggur. Þetta segir upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Bandero hefur ekki haft uppi á hvalveiðiskipunum Hvali 8 né 9. AÐGERÐIR Í UNDIRBÚNINGI FRÁ ÞVÍ Í MAÍ Fimm sérsveitarmenn og fjórir séraðgerðarmenn Landhelgisgæslunnar, auk áhafnar, eru um borð í varðskipinu Þór. Skipið lagði af stað frá Reykjavíkurhöfn síðdegis í gær.Viðbúnaðurinn er að frumkvæði gæslunnar, í samstarfi við dómsmálaráðuneytið og embætti ríkislögreglustjóra, og hefur verið í undirbúningi frá því í maí - þegar hótanir Paul Watson-samtakanna, um að binda enda á hvalveiðar á Íslandi, fóru að berast á samfélagsmiðlum.Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, baðst
Bandero ekki komist í nálægð við Hval 8 og Hval 9

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd