Björguðu slösuðum göngumanni úr brattri hlíð við krefjandi aðstæður

Björgunarsveitir í Skagafirði sóttu slasaðan göngumann í bratta hlíð við Hólmavatn á Hegranesi á laugardagskvöld. Göngumaðurinn hafði slasast alvarlega í brattri hlíð ofan við vatnið. Óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar við að flytja manninn á sjúkrahús, en fyrst þurfti að bera manninn niður úr hlíðinni á börum og flytja hann yfir vatnið á slöngubát.Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg segir að útkallið hafi borist skömmu fyrir klukkan 18 á laugardagskvöld. Tuttugu björgunarsveitarmenn frá Skagfirðingasveit af Sauðárkróki, Flugbjörgunarsveitinni í Varmahlíð og Gretti frá Hofsósi fóru á vettvang ásamt sjúkraflutningamönnum, lögreglu og slökkviliði.Björgunarsveitarmenn þurftu að ganga fyrir vatnið til að komast að slysstað, sem var í talsverðu brattlendi og grýttu lan
Björguðu slösuðum göngumanni úr brattri hlíð við krefjandi aðstæður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd