Fjórir núverandi og fyrrverandi lögreglustjórar vilja vera yfir höfuðborgarsvæðinu

Fjórir fyrrverandi og núverandi lögreglustjórar eru meðal sex umsækjenda um starf lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Á listanum eru bæði fyrrverandi lögreglustjórinn á Suðurnesjum, Úlfar Lúðvíksson, og settur lögreglustjóri á Suðurnesjum, Margrét Kristín Pálsdóttir.Úr röðum lögreglustjóra sóttu einnig um starfið María Káradóttir, settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, og Birgir Jónasson, lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra.Þá sóttu einnig um starfið Vera Dögg Guðmundsdóttir, nefndarmaður í Kærunefnd útlendingamála, og Serhii Duiko, sjúkraliði á Grund.Listinn var birtur á vef Stjórnarráðsins: * Birgir Jónasson, lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra * Margrét Kristín Pálsdóttir, settur lögreglustjóri á Suðurnesjum * María Káradóttir, settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu
Fjórir núverandi og fyrrverandi lögreglustjórar vilja vera yfir höfuðborgarsvæðinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd