Kanada gæti tekið þátt í Eurovision

Kanada gæti orðið næsta ríki til að taka þátt í Eurovision.Þetta varð ljóst eftir að kanadíska ríkisútvarpið, CBC/Radio Canada, fékk fulla aðild að Samtökum evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, í vikunni. Landið hefur um árabil verið áheyrnarmeðlimur í EBU.Hugsanleg þátttaka Kanada í Eurovision hefur oft komið til tals, einkum eftir að Ástralir tóku að keppa árið 2015. Hugmyndin fékk byr undir báða vængi á síðasta ári þegar Mark Carney, forsætisráðherra landsins, nefndi þátttöku í Eurovision sem dæmi um leið til að styrkja tengsl Kanada og Evrópu. Hann hefur lagt ríka áherslu á samstarfið við álfuna.Eurovision-keppnin hefur verið haldin árlega frá 1956. Síðustu ár hafa deilur um þátttöku Ísraelsríkis sett svip sinn á keppnina. Áhorf dróst saman í fyrra og fimm ríki, þar á meðal Ísland, sniðgeng
Kanada gæti tekið þátt í Eurovision

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd