Teymisstjóri Catherine á skrifstofu Airbnb segir hana alltaf hafa verið glaðlega, kurteisa og duglega í vinnunni. „Hún var eins og sólargeisli á skrifstofunni,“ sagði hann þegar hann gaf skýrslu fyrir dómi í morgun.Aðalmeðferð í svokölluðu Edition-máli heldur áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Ming Ting Mancel er ákærð fyrir að hafa orðið Catherine Mancel, þrítugri dóttur sinni, að bana í samverknaði við eiginmann sinn.Mancel er ekki ákærð fyrir aðkomu að andláti eiginmanns síns. Hún hefur sagt að fjölskyldan hafi komið til Íslands til að deyja saman. Hugmyndin hafi komið til því að eiginmaður hennar hafi verið með banvænan sjúkdóm.Teymisstjórinn segir Catherine ekki hafa lýst efasemdum um ferðina til Íslands þegar hún bað hann um frí fyrir ferðalagið í júní 2025. Hann telur hins vegar