Leitinni að MH370 fram haldið í ár í viðbót

Yfirvöld í Malasíu hafa framlengt leit að Boeing 777 flugvél Malaysia Airlines, MH370, um ár til viðbótar.Rúm 12 ár eru síðan flugvélin hvarf er hún var á leið frá Kuala Lumpur til Beijing í Kína, 8. mars 2014. Þrátt fyrir stærstu leitaraðgerð í flugsögunni hefur vélin enn ekki fundist.Samgönguráðherra Malasíu tilkynnti í dag að samningur við fyrirtækið Ocean Infinity yrði framlengdur til 30. júní 2027. Samningurinn kveður á um að fyrirtækið fái 70 milljónir bandaríkjadala hafi það uppi á braki flugvélarinnar. Takist það ekki fær fyrirtækið ekkert greitt.Flestir farþegar vélarinnar voru kínverskir.EPA
Leitinni að MH370 fram haldið í ár í viðbót

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd