Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður skorar á ríkissaksóknara að endurskoða öll mál á sex og hálfs árs tímabili þar sem ökumaður taldist óhæfur til að stjórna ökutæki vegna neyslu lyfja.Ástæðan er dómur sem Landsréttur kvað upp í síðustu viku. Þar var maður sýknaður af ákæru um að hafa brotið umferðarlög vegna aksturs undir áhrifum lyfja. Hann hafði fengið óxýkódon uppskrifað hjá lækni og mat Rannsóknarstofa Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði að hann væri óhæfur til að stjórna ökutæki. Maðurinn var sakfelldur í héraði en sýknaður í Landsrétti.Umferðarlög tóku gildi í ársbyrjun 2020 en frá þeim tíma hefur enginn ráðherra tilgreint í reglugerð hvar vanhæfismörkin liggja, hvenær ökumaður teljist óhæfur til að stjórna ökutæki. Því telur Vilhjálmur að endurskoða verði öll slík