Minnst 1.300 látin í hitabylgju

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að minnst 1.300 dauðsföll megi rekja til hitabylgjunnar sem gengið hefur yfir Evrópu síðan 21. júní. Hitamet féllu víða í álfunni í gær, þar á meðal í Þýskalandi, Póllandi og Tékklandi, mörg hver aðeins dagsgömul.Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO), segir í færslu á samfélagsmiðlum að hiti væri „þögull morðingi“ og að heimili, skólar og vinnustaðir í Evrópu væru ekki byggð fyrir þær hitatölur sem mælst hafa.Á sunnudagsmorgun greindu frönsk yfirvöld frá því að í landinu hefðu verið skráð þúsund umframdauðsföll síðan á miðvikudag. Flest væru meðal 65 ára og eldri og 40% aukning hefði verið á tilfellum þar sem fólk lést heima hjá sér.„Evrópa er sú heimsálfa sem hlýnar hraðast á jörðinni, tvöfalt hraðar en heimsm
Minnst 1.300 látin í hitabylgju

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd